frístundakort

rig

 

 

02.06.2010

Félagsmeistarar

Sumarmót TBR var haldið 29. maí sl. Mótið er innanfélagsmót og eru sigurvegarar hvers flokks krýndir Félagsmeistarar. Keppt er í öllum flokkum í einliðaleik, en í U11 ára flokknum fá allir að keppa nokkra leiki og allir fá verðlaun.

u11 hópurinn

Í hnokkaflokki (U13) varð félagsmeistari Kristófer Darri Finnsson og í öðru sæti varð Davíð Bjarni Björnsson. Í tátuflokki varð félagsmeistari Alda Karen Jónsdóttir og í öðru sæti varð Lína Dóra Hannesdóttir.

kristófer og davíð   alda og lína

Í sveinaflokki (U15) varð félagsmeistari Gunnar Bjarki Björnsson og í öðru sæti Daníel Jóhannesson. Í meyjaflokki varð félagsmeistari Sara Högnadóttir. Í öðru sæti varð Margrét Jóhannsdóttir

gunnar og daníel   sara og margrét

Í drengjaflokki (U17) sigraði Þorkell Ingi Eriksson og í öðru sæti varð Hilmar Páll Hannesson, í telpnaflokki sigraði María Árnadóttir og í öðru sæti varð Hulda Lilja Hannesdóttir.

þorkell og hilmar   maría og hulda

Í stúlknaflokki sigraði Jóhanna Jóhannsdóttir og í öðru sæti varð Berta Sandholt. Í piltaflokki sigraði Jónas Baldursson og í öðru sæti varð Haukur Stefánsson.

jóhanna og berta   jónas og haukur