Nú er kominn júní og vill TBR þakka félagsmönnum fyrir veturinn. Einnig viljum við nota tækifærið og auglýsa breyttan opnunartíma í sumar. Finna má tíma sem hægt er að leigja undir tenglinum lausir tímar hér að ofan. Einnig er hægt að smella hér. TBR húsið er opið frá 8:00 - 20:30 mánudaga til fimmtudaga og frá 8:00 til 17:00 á föstudögum. Húsið er lokað um helgar. Vetrarstarfið hefst svo aftur af krafti 1. september nk.
Uppskeruhátíð unglnga var haldin 1. júní sl. í félagsmiðstöðinni Þróttheimum. TBR býður öllum börnum og unglingum sem æfa hjá félaginu í pizzu og gos og krakkarnir sjá um skemmtiatriðin sjálf. Lesa frétt
Sumarmót TBR var haldið 29. maí sl. Mótið er innanfélagsmót og eru sigurvegarar hvers flokks krýndir Félagsmeistarar. Keppt er í öllum flokkum, en í U11 ára flokknum fá allir að keppa nokkra leiki og allir fá verðlaun. Lesa frétt
Sumarskóli TBR hefur verið starfræktur í yfir 20 ár. Þetta er alhliða íþróttaskóli og eru fjölmargar íþróttagreinar á dagskrá. Badmintoníþróttin skipar þó veglegan sess, enda er hún aðalíþrótt TBR. Við starfrækjum íþróttaskóla fyrir 6–13 ára börn í sumar. Skipt er í hópa eftir aldri. Til að lesa frekar um Sumarskóla TBR smellið hér